Ef þið eigið leið um Blönduós á næstunni, þá langar mig til að benda á að um helgina verður opnuð í Esso-skálanum sýning á ljósmyndum Gísla Egils, ljósmyndara Gestgjafans; þetta eru myndir sem hann tók í fyrra fyrir bókina mína, Cool cuisine. Þær eru teknar á svölunum hér hjá mér á Kárastígnum, sem hafa eins og ég hef áður getið um verið eitt helsta matarmyndastúdíó landsins undanfarin tvö ár.