Þið þarna norðan heiða, er nokkuð verulega slæmt veðurútlit? Þarf ég að taka stórhríðaúlpuna mína með til Akureyrar á morgun?
Gestgjafinn er semsagt á leið til höfuðstaðar Norðurlands að fylgjast með keppninni Matreiðslumaður ársins, skoða sýninguna Matur-inn, kynna sér akureyrsk veitingahús og fleira.
Ég ætlaði að fara að skrifa eitthvað um að ég hefði örugglega ekki komið til Akureyrar að vetrarlagi í tuttugu ár eða meira. En svo mundi ég að ég kom þangað í fyrravetur. Duh ...