Ég strengdi ekkert áramótaheit fremur en venjulega, eða ekki beinlínis, en ég ákvað nú samt að á nýju ári ætlaði ég að reyna að skipuleggja mig betur til að forðast að lenda alltaf í tímahraki og vandræðum, ekki síst með aukaverkefni.
Það gengur alveg gífurlega ekki vel. Ég sé fram á að minnsta kosti þrjú tímahrök, bara í þessum mánuði, ef ég geri ekki eitthvað í málunum og það ekki seinna en strax.
Æjá.