Boltastelpan fékk að gista síðustu nótt og seint í gærkvöldi tókst henni eftir töluverða eftirgangsmuni að fá efnafræðistúdentinn til að spila við sig Matador. Yfir því sátu þau fram eftir nóttu. Framan af var gengi þeirra í viðskiptalífinu nokkuð áþekkt en svo fór að halla undan fæti hjá stúlkunni. Þegar hún átti sirka fimmtán krónur eftir í reiðufé, hafði veðsett allar eignir sínar og lenti á Austurstræti með hóteli (eða einhverju álíka) stóð hún upp og tilkynnti: -Ég er hætt.
Leit svo hróðug á móðurbróður sinn og sagði: -Ég vann af því að ég hætti.
Efnafræðistúdentinn spáir henni frama í bissness þar sem hún sé þegar búin að átta sig á prinsippinu á bakvið kennitöluskipti.