Ég fékk mér rúgbrauðssneið með hangikjöti áðan. Geri það stundum á gamlárskvöld, svona til að rifja upp eitt gamlárskvöld fyrir óralöngu, þegar kvöldmaturinn minn var tvær rúgbrauðssneiðar með hangikjöti. Borðaðar í kjallaraherbergi á Gamla-Garði, þetta var það eina ætilega sem herbergisbúinn átti til í ísskápnum.
Það var þá.