Við borðuðum á Humarhúsinu í hádeginu í dag. Fjórréttað og afskaplega gott. Þeir eru öðlingar, drengirnir.
Á næsta borði sat forsætisráðherra ásamt tveimur fylgdarmönnum. Ekki tók ég eftir hvað þeir borðuðu en þeir drukku allir kók úr rauðvínsglösum. Litlar kók í gleri. Í janúar-Gestgjafanum er Jóhannes í Bónus með boð fyrir Björgúlf og fleiri og gefur þeim kók að drekka. Litlar í gleri. Ætli þetta sé að verða trend?