Mér skilst að Gunna systir og fjölskylda hafi leikið á reiðiskjálfi í jarðskjálftanum í Kosta Ríka í gær. Uppi á sirka tólftu hæð í einhverju háhýsi sem sveiflaðist til og frá eins og puntstrá í vindi. En þau sluppu þó ósár og eru komin til Orlando. Sennilega til að halda áfram að hristast í rússibönum og öðrum Disneylandsleiktækjum.