Ég hef verið að bíða eftir hugskeyti frá Begga varðandi veðrið í Kaupmannahöfn næstu dagana af því að ég á leið þangað á morgun. Þrír möguleikar í stöðunni:
1) Beggi hefur alveg svikist um að senda mér hugskeyti.
2) Hugsanalesturhæfileikar mínir ná bara til getraunanna hjá honum.
3) Það verður rok, rigning og skítakuldi í Kaupmannahöfn út vikuna.
Ætli sé ekki best að ég taki með einhverja hlýja, vatns- og vindhelda yfirhöfn.