Jæja, þá er það afmælið hennar Gurríar. Reyndar er of heitt til að sitja inni í afmælisveislu en það er sama, ég er búin að skrópa hjá Gurrí tvö ár í röð (að vísu með pottþéttar afsakanir í bæði skiptin) og læt það ekki gerast einu sinni enn.
Tek líklega efnafræðistúdentinn með, ungir og myndarlegir karlmenn (eða myndarlegir karlmenn - eða bara karlmenn) hafa alltaf verið vel séðir í afmælisboðum á Hringbrautinni. Hann er að vísu ekki lengur einhleypur ...