Þegar ég kom að norðan á sunnudaginn slapp ég reyndar við að sitja með barnabörnunum í aftursætinu, ég fékk að vera í framsætinu á jeppa eins og ég var að óska mér - reyndar ekki með huggulegan karlmann mér við hlið, bara Gunnu systur, en hún er nú ágætur félagsskapur líka. Svava dóttir hennar var svo í aftursætinu og það barst eitthvað í tal á leiðinni að ég hefði aldrei tekið bílpróf.
Svava: - Þurftir þú ekki að læra á bíl af því að þú fékkst alltaf far með sætu strákunum?