Það er grillað úti í hádeginu hér á Fróða í dag og allir sitja núna fyrir framan húsið í sólbaði nema ég. Það er einfaldlega of heitt fyrir mig. Ég er reyndar brunnin á vinstri öxlinni og var að velta því fyrir mér að snúa þeirri hægri í sólina nógu lengi til að brenna á henni líka - svona til að jafna þetta út - en hætti svo við.
Boltastelpan gisti hjá Svövu frænku sinni í fyrrinótt og var hjá henni í gær. Mér skilst að á þessum heitasta degi frá upphafi mælinga í höfuðborginni hafi þær setið inni mestallan daginn og spilað tölvuleiki.