Búið að taka forsíðumyndina á næsta Gestgjafa. Það var til allrar hamingju gert úti, nánar tiltekið í garðinum framan við heimili ritstjórans. Fjöldi geitunga fylgdist með af miklum áhuga.
Efnafræðistúdentinn segir að það sé brot á Genfarsáttmálanum að hafa svona veður akkúrat þegar hann er að lesa undir próf. Ég veit ekki með Genfarsáttmálann en það er allavega mannréttindabrot, það get ég samþykkt.