Var að setjast niður í fyrsta skipti í dag. Eða svo gott sem, ég settist reyndar í fimm mínútur í morgun af því að Bragi ljósmyndari þurfti að taka mynd af mér við tölvuna, en annars er ég búin að vera á þönum í eldhúsinu - búið að elda og mynda fjórtán rétti. Stílistinn í sumarfríi. Og er ég búin - ónei, nú er allur frágangurinn í eldhúsinu eftir. Ég er sko ekkert á heimleið.
Ég vildi að ég væri frægur sjónvarpskokkur, ég er viss um að þeir þurfa ekki að vaska upp eftir sig.