Magnús Skarphéðinsson er sannfærður um að hingað hafi komið geimverur. Ég er alveg viss um að það er rétt hjá honum. Og ég held að þær séu hér á meðal okkar. Ég hef til dæmis aldrei verið viss með Ástþór - en að vísu er ég hrifnari af kenningu okkar um að hann sé bin Laden í dulargervi.
Ég hitti einu sinni mann á balli í Húnaveri sem sagðist vera geimvera. Hann var mjög sannfærandi en ég var nú ekkert spenntari fyrir honum þrátt fyrir framandlegan upprunann. Kannski var hann bara frá Skagaströnd.