Jæja, ég fékk allavega kaffið mitt. Þegar mér tókst á endanum að mjaka drengnum á fætur hafði hellst yfir mig löngun í vínirbrauð, einkum og sér í lagi pekanhnetuvínarbrauð úr Sandholtsbakaríi. Þannig að ég sendi hann niður í bakarí en hellti sjálf upp á kaffið á meðan. Svo sátum við í makindum úti á svölum í sólarbreiskjunni og úðuðum í okkur vínirbrauði og öðru góðgæti.
Lífið er gott. Eða það væri það ef ég væri ekki að vinna ...