Hvers vegna í fjáranum getur drengurinn ekki drattast á fætur svo að ég geti látið hann hita handa mér kaffi og snúast í kringum mig? Ég meina, til hvers er maður að eignast syni?´
Annars skrapp ég í bæinn áðan, stóðst ekki góða veðrið þótt ég megi eiginlega ekkert vera að því að fara út. Sá hlut í búðarglugga sem mig bráðvantar (les: langar mjög mikið í). Búðin var náttúrlega lokuð. Og á mánudaginn verð ég örugglega búin að gleyma þessu og þegar ég man eftir því um miðja næstu viku verður hluturinn seldur ... Eða það er venjan.