Hmmpf - hérna elda ég almennilegan comfort food handa blessuðum efnafræðistúdentinum (þar sem ég er kona get ég gert fleira en eitt í einu og stóð þar af leiðandi hér áðan með sleifina í annarri hendi og hrærði í pottinum og í hinni hélt ég á pensli og málaði vegginn við hliðina á eldavélinni) - og svo kemur hann heim, spyr ekki einu sinni um matinn, heldur fer beint inn í herbergi með vini sínum og lokar að sér. Ætli þeir séu ekki að spila tölvuleik? Það verður bið á að ég eldi spes oní hann aftur.
Já, ég er semsagt að mála eldhúsið. Gulgrænt, dálítið eins og slý. Er ekki alveg búin að gera upp við mig hvernig mér líst á það, ætla að mála aðeins meira og sjá til.