Það var að renna upp fyrir mér að það eru ekki nema átta dagar - þar af fimm vinnudagar - þangað til ég fer í sumarfrí. Og eftir tíu daga leggjum við Boltastelpan af stað í utanlandsferðina okkar. Og ég á eftir að gera skelfilega margt.
Æi, það reddast nú. En ég verð að halda mér vel að verki um helgina. Eins gott að það er ekkert á dagskrá og gagnlega barnið er að fara norður með fjölskyldu sína, þá get ég ekki notað barnabörnin sem afsökun fyrir slóri. En ég finn mér kannski eitthvað annað til ...