Við mæðginin erum þvílíkir ratar. Hann gleymdi húslyklunum heima. Ég gleymdi peningaveskinu heima. Eins gott að við gleymdum ekki bæði húslyklunum.
Ég hefði annars farið út í Nóatún í hádeginu og keypt avókadó og fleira til að gera tilraunir fyrir Gestgjafaþátt sem ég er með í undirbúningi en þar sem Nóatúnskortið mitt er í peningaveskinu verður það að bíða. Fjárinn, ég hefði þurft að kaupa þetta í dag til að meiri líkur væru á að hafa sæmilega þroskað avókadó þegar að því kemur að elda þetta. Sem verður líklega á miðvikudag.
Avókadó eða lárpera er annars - eins og t.d. tómatur - ein af þessum vandræðategundum sem er meðhöndluð og oftast flokkuð eins og grænmeti þótt þetta sé í rauninni ávöxtur. Sumstaðar í Suður- og Mið-Ameríku er það borðað með sykri eða notað í búðinga.
Avókadóið er upprunnið í Ameríku og tréð var fyrst ræktað í Evrópu á 16. eða 17. öld en aldinið náði þó lítilli hylli fyrr en upp úr miðri 20. öld. Eða svo ég vitni aftur í ömmuna í þáttunum um Braithwaithe-fjölskylduna: ,,Lárperur og lesbíur komu fram á sama tíma. Þetta byrjaði allt um árið 1962, minnir mig."