Nú þarf ég að fara í Nóatún aftur, meðal annars til að kaupa fisk. Sjáum til hvernig mér gengur að fá afgreiðslufólkið þar til að selja mér hann. Ég er ekkert meira gourmet-leg en í gær.
Annars kom ég við í Nóatúni seinnipartinn og þá var búið að merkja þorskinn tryggilega: Gourmet-þorskfillet. Þó ekki ,,fillet úr flaki".