Ég held að ég hafi slegið nýtt met í utanviðmigheitum núna um helgina. Ég var boðin í tvö fertugsafmæli og hvernig sem ég fór að því, þá tókst mér að rugla bæði dagsetningum og tímasetningum svo skrautlega saman að á endanum mætti ég í hvorugt. Mér þykir þetta mjög miður því að ég hefði sannarlega viljað vera á báðum stöðunum og biðst auðmjúklega afsökunar.
Stundum undrast ég hvernig manneskja eins og ég fer yfirleitt að því að fúnkera í daglegu lífi, það segi ég satt.