Gremjulegt þegar maður kemur heim klukkan 18 mínútur yfir 5 og finnur miða í forstofunni um að pósturinn hafi reynt að skila af sér pakka klukkan 17.15.
Ojæja. Ég er búin að bíða eftir þessari bók í hátt í tvö ár, get líklega alveg beðið til fyrramáls.
Á morgun á ég líka að fá nýja flotta Liebherr-ísskápinn minn. Gaman gaman.