Ég veit ekki hvað er í gangi með spammið mitt, það er þvílíkur óratími síðan ég hef fengið brjóstastækkunartilboð. Ekki að ég sakni þeirra neitt en ég er að velta fyrir mér hvernig á þessu muni standa. Kannski eru spammararnir loksins búnir að komast að því að ég er með alveg nógu stór brjóst, takk fyrir - nei annars. Það er hreint ekkert lát á tippastækkunar- og Viagratilboðum, öðru nær. Bullandi þensla þar (pun intended). En ætli brjóstastækkunarbransinn sé í einhverri niðursveiflu?