Boltastelpan (sem stendur sig ekki vel sem bloggari þessa dagana) er lögð af stað í sína fyrstu keppnisferð, með rútu alla leið til Akureyrar. Það á að gista í tvær nætur og koma heim á sunnudaginn. Rosalega spennandi. Frí í skólanum og allt.
Ég hringdi í hana í gærkvöldi til að kveðja og sagði henni að ég mundi sakna hennar svo mikið að ég gæti örugglega ekki borðað matarbita á meðan hún væri í burtu. Ég held að hún hafi ekki trúað mér.