(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

21.10.03

Ég var að velta því fyrir mér áðan hvort ég ætti að fá mér eitt rauðvínsglas eða appelsínusafa. Svo mundi ég að ég var að taka heil fjögur alkasjálfspróf á vefnum hjá SÁÁ í dag (af því að það var verið að fjalla um þessi próf á femin) og kolféll á þeim öllum - eða náði þeim - eða það er að segja, ég reyndist afskaplega óefnileg sem alki. Nei, ég er reyndar að ljúga þessu. Samkvæmt einu prófinu er ég haldin bullandi áfengissýki, bara af því að ég svaraði því til að ég gæti drukkið fimm rauðvínsglös eða bjóra án þess að sofna ölvunarsvefni. Þetta var eina spurningin sem ég svaraði játandi fyrir en þar sem ég er kvenmaður dugði þetta til þess að ég var orðin alkóhólisti að mati SÁÁ, væntanlega af því að ég er búin að byggja upp svo mikið drykkjuþol. Ég veit ekki hvers konar hænuhausar semja svona próf.

En ég fékk mér allavega rauðvínsglas.

|