Ég leit aðeins á útsendingu frá aukakosningunum í Bretlandi á Sky í gær. Sakna þess alltaf pínulítið að sjá ekki lengur Screaming Lord Sutch við slík tækifæri. En það kemur greinilega maður í manns stað (og þá er ég ekki að meina Aaron Barschak, náungann sem gerðist boðflenna í afmæli Vilhjálms prins, hann var víst líka í framboði þarna og var frekar ófyndinn).
,,Vote for insanity - you know it makes sense."