Af því að ég var að tala um fræga fólkið í gær: Aldrei hef ég orðið svo fræg að komast í eitthvað hverjir voru hvar dæmi. Gagnlega barnið komst þó í Pressuna þegar hún var að djamma á sínum sokkabandsárum og efnafræðistúdentinum hefur brugðið fyrir á einhverjum djammmyndum á netinu. En það hefur bara einn meðlimur fjölskyldunnar komist í Helgina á Baggalút.