Ég þarf að vakna á einhverjum óguðlegum tíma í nótt til að fara svo upp á Stöð 2 og delera þar eitthvað um ber og uppskeru. Einhvern veginn er það ekki það sem mig langar mest til að gera akkúrat núna. Og sennilega ennþá síður klukkan sjö í fyrramálið.
Ojæja, verra gæti það verið. Ég gæti þurft að vakna fyrir klukkan fjögur til að steikja kalkúna eins og í fyrra.