Ég var að horfa á þáttinn um hellisbúana (sem bjuggu ekki í hellum) í sjónvarpinu áðan og nú er ég að horfa á One Million Years BC á franskri stöð (þar sem ekki er talað skiljanlegt orð í myndinni gerir ekkert til þótt ég skilji sáralítið í frönsku). Þar búa hellisbúarnir í hellum, skrímslin eru miklu flottari en forsögulegu dýrin í sjónvarpsþættinum, og konurnar eru allar nýkomnar úr hárgreiðslu og snyrtingu, í flottum gærubikinium og rakaðar undir höndunum.