Albertina Potter sendi mér tölvupóst áðan með yfirskriftinni ,,This is the 5th email I sent you". Mér finnst eiginlega mál til komið að blessunin hún Albertina fari að átta sig á því að mig vantar bara ekkert Viagra.
En ég er viss um að á morgun fæ ég skeytið: ,,This is the 6th email I sent you". Ef ekki frá Albertinu Potter, þá frá Serenu Parker, sem er trúlega sama manneskjan.