Mér finnst þetta umhugsunarverður og að mörgu leyti góður pistill hjá Ingólfi. Enda fletti ég flestum glanstímaritum sem út koma á Íslandi og hef lesið prófarkir að fjölda sjálfsstyrkingarbóka. En hvernig unnt er að lesa pistilinn sem árás á femínista er mér fyrirmunað að skilja. Þótt þeir séu nefndir einu sinni í framhjáhlaupi framarlega í greininni. Hún fjallar ekki um femínista. Allavega ekki nema maður sé með helvíti hvöss kynjagleraugu.