Dularfullir hlutir í gangi ...
Í gærkvöldi setti ég inn fullt af nýjum tenglum. Þeir komu inn eins og þeir áttu að gera, allt í lagi með það. Svo ætlaði ég að laga einn þeirra aðeins en þegar ég fór inn á teamplate-ið, þá fékk ég bara upp minnst tveggja mánaða gamla útgáfu með bara einhverjum fimm eða sex tenglum. Samt birtast nýju tenglarnir hér þótt þeir sjáist ekki á tímpleitinu. Ég veit ekki hvort ég á nokkuð að vera að hreyfa við þessu, það fokkast örugglega allt upp. Mín reynsla af Blogger er sú að hlutirnir lagist oftast af sjálfu sér ef maður gerir ekkert.
Það á samt örugglega eftir að klikka núna. Um leið og ég ýti á publish fer ábyggilega allt í spað. Ókei, ég hef þá páskana til að koma öllu í lag aftur. Nema ég ætla að vísu að nota páskahelgina til að vinna einhver ósköp, en þau áform gætu náttúrlega breyst, allavega ef veðrið heldur áfram að vera sómasamlegt.