Ungt fólk vill hafa súran mat súrari, segir Mogginn. Ekki kemur það mér verulega á óvart, ég hélt að allir vildu hafa súran mat súrari en þetta drasl sem hefur verið algengast í búðum að undanförnu. Það verður enginn alminlegur súrmatur úr því sem látið er liggja einhverjar fáeinar vikur í daufri ediksblandaðri mysu. En það er kannski ekkert að marka mig, sem ólst upp við heimasúrsaðan mat á borðum nærri daglega og át í bernsku súrsuð lungu upp úr hundatunnunni.