Matargúrúinn hefur ekki eldað heima hjá sér síðan á laugardagskvöld og aumingja efnafræðistúdentinn hefur þurft að lifa á snöpum og bónbjörgum. En nú verður bætt úr því á eftir, ég hringdi í hann áðan og spurði hvað hann vildi en hann sagði bara ,,eitthvað gott og mikið af því". Ætli hann fái ekki eitthvað arabískt og frekar sterkt, ég er alveg í skapi fyrir svoleiðis. Eða indverskt. Ég finn út úr því í búðinni á heimleiðinni. Og svo baka ég kannski brauð handa drengnum. Ekki má hann horfalla.