Eldfjallið verður víst yngsta stelpan í fjölskyldunni enn um sinn og sennilega nokkur næstu árin, þrátt fyrir eindregnar óskir hennar um stelpu fékk hún lítinn frænda í dag þegar Sigga systir og Þórir eignuðust nýársbarnið sitt.
Ég var búin að spá að þetta yrði strákur. Ég spái alltaf að börn sem von er á í heiminn verði strákar, þá hef ég rétt fyrir mér í meira en 50% tilvika.