Ég held að það séu næstum allir farnir í jólafrí hér nema ég. Einhver er að vísu örugglega á kjaftasagnavaktinni inni á Séðu og heyrðu og svo er ljós inni á Vikunni, trúlega þarf að endurskoða völvuspána fyrir 2003 í ljósi síðustu atburða. Ég er aftur á móti að bíða eftir manni. Stór hluti af lífi mínu hefur farið í að bíða eftir mönnum. Sjaldan konum, þær láta ekki bíða eins mikið eftir sér hvað sem hver segir.