,,Pizza er heimsfrægur ítalskur þjóðarréttur, sem breiðzt hefur út um allan heim. Hann samanstendur af brauðbotni, gaffalbitum eða sardínum, tómötum og osti."
(Eldhúsbókin, mars 1974.)
Gagnlega barnið mitt fæddist einmitt í þessum mánuði, hún er semsagt nokkurn veginn jafngömul pitsumenningunni á Íslandi. Að vísu liðu 2-3 ár þar til ég bragðaði pitsu í fyrsta sinn, en ég var nú líka fyrir norðan og tískustraumar bárust ekki endilega með eldingarhraða yfir Holtavörðuheiði, hvorki í mat né öðru. Og ég man aldrei nokkurn tíma eftir að hafa fengið pitsu með gaffalbitum. Þeir voru annars býsna algengir í mat á þessum árum og munu hafa átt að koma í staðinn fyrir ansjósur (man einhver eftir vínarsnitsel skreyttu með gaffalbita?)