Eymingja efnafræðistúdentinn - fimm dagar til jóla og hann á eftir tvö próf. Annað reyndar núna á eftir en hitt ekki fyrr en eftir hádegi á laugardaginn, þá fyrst getur hann farið að huga að því að komast í jólaskap. Ég var nærri búin að kaupa jólaseríu með feitum veifandi jólasveinum handa honum í fyrrakvöld (sko, mig langaði í seríuna en hans gluggi er sá eini sem er seríulaus) en það hlaut svo daufar undirtektir að ég steinhætti við. En hann getur bara mætt beint í laufabrauðsskurðinn úr prófinu.