Ég fann fjársjóð í Kolaportinu á dögunum, möppu fulla af Vísi í vikulokin, sem rosknar konur muna kannski eftir. Ótrúlega gaman að skoða þetta. Mataruppskriftirnar eru svona og svona, þótt sumar mundu alveg ganga núna, en útlitið á matnum er glatað og örugglega ekki á leiðinni aftur ,,inn". Tískumyndirnar (þetta er frá því á árunum 1967-71, sirka) gætu aftur á móti sumar hverjar hafa verið teknar í gær. Ég á kannski eftir að vitna eitthvað í þetta á næstunni, og eins Eldhúsbókina, sem ég kom höndum yfir í vor. Því miður er safnið ekki komplett, svo að ef einhver á reyting af þessum blöðum og hefur ekkert við þau að gera, þá yrði ég voða voða glöð.
,,Konan mín vill Kenwood Chef sér til aðstoðar í eldhúsinu ... og ég er henni alveg sammála, því ekkert nema það bezta er nógu gott fyrir hana."
(Auglýsing í Vísi í vikulokin, rétt fyrir jól, um 1970)