Amman og forréttirnir
Dótturdóttirin að snuðra í eldhúsinu: -Ætlarðu að gefa okkur hráa risarækju??? (fjölskyldan er að koma í kvöldmat).
Amman: -Nei, ég ætla að elda hana.
Dótturdóttirin: -En - oj, risarækja!
Amman: -Hún er í forrétt á undan nautalundinni, þú getur þá bara borðað brauð. Ég ætla að baka nýtt baguette.
Dótturdóttirin: -Hvað er þetta með þig og forrétti????
Þegar stórt er spurt ...