Sushivísitalan vinnur með Obama
Samkvæmt bandarísku sushi/steikarvísitölunni vinnur Obama forsetakosningarnar.
Því meira sushi, þeim mun fleiri atkvæði til demókrata.
Og því fleiri steikarstaðir í hlutfalli við sushistaði, þeim mun fleiri atkvæði til repúblikana.
Obama getur samt ekki treyst alveg á sushivísitöluna því fólki fjölgar örar í steikarborgunum en sushiborgunum.