Freyðivínsmorgunverður í kreppunni
Freyðivín, hráskinka, ostar, massív súkkulaðikaka og fleira gott í morgunmatinn - það var bara ekkert slæmt. Forlagið er nefnilega eins ár í dag, þ.e. það er ár síðan JPV og bókaútgáfa Eddu sameinuðust undir einum hatti. Og rétt rúmir ellefu mánuðir síðan ég flutti hingað vestureftir, reyndar aðeins á undan öðrum úr Síðumúlanum.
Þetta er búinn að vera afskaplega góður tími, finnst mér. Þannig að ég óska okkur bara til hamingju með afmælið.