Ómissandi fyrir alla drengi ... er það ekki?
Af hverju var svona ekki til þegar einkasonurinn var lítill? Eða af hverju vissi ég ekki af þessu þegar dóttursonurinn var á bleyjualdri? Ég hefði skemmt mér svo við að punta þá með ,,pee-pee teepee for the sprinkling wee-wee". Sérstaklega þessum með rock'n roll-hauskúpunum. Eða jólasveinahúfunum ...
Því miður fæst hvorug útgáfan hjá Englabossum en þar er hægt að panta fimm stykki af tippahöttum í pakka á aðeins 1500 krónur.
Ef ég hefði bara haft svona flottan tippahatt, þá hefði einkasonurinn ekki sprænt framan í sjálfan sig á fæðingardeildinni, stóru systur sinni til ómældrar kæti.
Svona eru til margir ómissandi hlutir sem maður veit ekki af.