(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

2.4.08

Spádómar dagsins

Eins og margsinnis hefur komið fram get ég valið um tvö stjörnumerki, sem væri stór kostur ef ég tæki mark á stjörnuspám. En ég kíki samt stundum á þær mér til hugarhægðar og í morgun átti ég völ á þessum tveimur:

Fiskarnir:
Ertu á fullri ferð í gegnum umferð borgarinnar til að ná í jóga-tíma? Eða hefur áhyggjur af spennu í sambandi? Því fylgir streyta að losa sig við streytu!

Ég? Umferð? Jógatími? Spenna í sambandi? Streyta (svo!)???

Nei, ég held að það sé alveg ljóst að í dag er ég Hrútur:

Hvers vegna að leggja fyrir? Það er miklu skemmtilegra að eyða peningunum! Þú ert í stuði til að trúa á eigin ríkidæmi og heldur áfram að eyða.

|