Saumaklúbbsmatarboð
Ég var með saumaklúbbinn minn í afskaplega vel heppnuðu matarboði í gær (gasið kláraðist og það fór öryggi en ég var búin undir hvorttveggja; hins vegar hætti stærri ofninn óvænt að virka í miðju kafi en mér tókst að bjarga því og það er allt í lagi með ofninn núna - dularfullt).
Myndir (og lýsingar á réttunum) eru hér.
Annars eru þessi margrétta matarboð mín svolítið hvert öðru lík en það er ekki vegna þess að ég sé svona hugmyndasnauð - meira það að þegar ég er að elda (eða borða) fæ ég gjarna hugmyndir um tilbrigði við réttinn sem ég er að gera og prófa hann þess vegna næst í annarri útfærslu. Sem er allt í lagi ef maður er ekki með sama fólkið í mat ...
En þetta var ljúft. Þakka ykkur innilega fyrir kvöldið, stelpur. (Jájá, ég veit - en við erum allavega búnar að þekkjast síðan við vorum stelpur. Og við erum ekkert allar komnar á sextugsaldurinn. Ekki ennþá. Sú yngsta á meira að segja heilt ár eftir í það.)