Íslandsmeistarinn
Uppáhaldstengdasonurinn var víst rétt í þessu að verja Íslandsmeistaratitil sinn í kaffismökkun. Sem þýðir væntanlega að honum gefst kostur á að verja silfurverðlaunasætið á heimsmeistaramótinu - nú, eða gera atlögu að heimsmeistaratitlinum.
Það þýðir líklega að ég get ekki verið þekkt fyrir að hafa annað en almennilegt kaffi á boðstólum. Jamaica Blue Mountain upp á hvern dag - nei, ekki alveg kannski. En það verður eitthvað gott í bollunum eftir matarboðið í kvöld. Ef einhver hefur þá lyst á kaffi.