Skafið úr skútum
Vesalings Boltastelpan var í aðgerð í morgun vegna þrálátrar skútabólgu; ég veit reyndar ekki nákvæmlega í hverju aðgerðin fólst en sennilega var verið að víkka göng sem liggja í kinnholur og nefholur og allar þessar holur (skúta) og moka út þeim þremur mismunandi tegundum af sýklum sem þar höfðu hreiðrað um sig og fundust í rannsóknum fyrir jól. Sennilega hefur leiðin legið í gegnum nefið á barninu, allavega kvartar hún yfir eymslum í nebbanum, þó ekki sérlega miklum og er ekki verr haldin en svo að hún situr nú heima og spilar tölvuleik.
Hún er búin að vera ansi oft lasin í vetur en var þó ekki þjáðari af skútabólgunni en svo núna milli jóla og nýárs að hún spilaði með 3. flokki KR-stelpna sem vann jólamót Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og skoraði meira að segja mark - væntanlega verður hún óstöðvandi þegar hún er laus við alla sýklaflóruna.
Ég átti eiginlega von á því að hún yrði rúmföst eða allt að því í nokkra daga eftir aðgerðina en mér heyrist að litlar líkur séu á því - ætli hún verði ekki mætt á vaktina í bakaríinu á fimmtudaginn? Kæmi mér ekki á óvart. Enda leiðist henni að hanga heima. Úrvalið af sjónvarpsstöðvum er ekki eins fjölbreytt og hjá mér og alveg takmarkað hvað er hægt að horfa mikið á sjónvarpsmarkaðinn. (Annað mál með dr. Phil - barnið er mikill dr. Phil-aðdáandi og lá til dæmis við að ekkert yrði úr smákökubakstri hennar fyrir jólin því þegar átti að byrja var skollið á eitthvert dr. Phil-maraþon á Skjá 1.)
En mér heyrðist hún allavega nokkuð hress áðan. Og bróðir hennar var greinilega hættur að óttast að aðgerðin yrði stóru systur að aldurtila; sú tilhugsun (sem áreiðanlega kviknaði út frá einhverjum orðum téðrar systur) hafði valdið honum þungum sorgum fyrir áramót.