Amerískt hollmeti ...
Ég var að skoða fiskuppskriftir af ýmsu tagi á netinu (jájá, það er kominn janúar) og undir fyrirsögninni Healthful ways to cook fish (eða eitthvað álíka) fann ég uppskrift að soðnum þorski - allt í lagi með það nema í uppskriftinni, sem var fyrir um kíló af þorski, voru notuð um 225 g af sykri og 340 g af smjöri - fiskurinn var semsagt fyrst soðinn í sykurvatni, svo grillaður löðrandi í smjöri og borinn fram með miklu paprikusmjöri.
Ég held að Ameríkanar hafi einhverja aðra skilgreiningu á healthful en ég lærði í skóla.