Misjafn smekkur
Dótturdóttirin sat hér um helgina. Rakst á matseðil úr einu af matarboðunum mínum og fór að lesa hann. Var ekkert mjög impressed á svipinn.
Amman: -Á ég að bjóða þér í svona tíu rétta matarboð einhverntíma?
Boltastelpan: -Nei takk. En amma, viltu nokkuð bjóða mér í kálböggla bráðum?