Hornkerlingin
Nú er að koma mynd á hornið mitt hér á Bræðraborgarstígnum; ég er búin að girða mig af með bókaskápum og glerskilrúmum og komin með einkasvæði sem er t.d. stærra en skrifstofan sem ég hafði í gömlu lyftunni hjá Fróða. Og stærra en eldhúsið mitt á Hörpugötunni svo dæmi sé tekið.
Ég setti skilrúm á milli okkar Þórunnar Hrefnu. Hún heldur örugglega þegar hún mætir á mánudaginn að ég sé að hafna sér. Sem ég er ekki, enda er þetta glerskilrúm og við getum alveg haldið áfram að horfast í augu í gegnum munstrið.
Ég kann afskaplega vel við mig úti í horni; þarf eiginlega helst að hafa tvo veggi aftan við mig til að mér líði vel (þótt ég kæmist að því í Síðumúlanum að bókaskápar og skilrúm geta vel komið í stað veggja). En bersvæði fellur mér ekki.
En nú þarf ég að fara að segja Boltastelpunni hvað ég ætla að gefa henni í sameinaða afmælis- og jólagjöf. Hún á nefnilega afmæli í dag, 14 ára. Og mamma gamla á afmæli líka; hún fékk langömmubarn í 65 ára afmælisgjöf.
Þann dag fyrir 14 árum voru áreiðanlega ekki allar jólabækur komnar út hjá Iðunni, allavega var ég að vinna fram á kvöld. Hringdi upp á fæðingadeild um níuleytið og fékk að vita að ég væri orðin amma.
En nú eru allar jólabækurnar komnar og ég er ekkert á leiðinni að bæta við mig barnabörnum. Svo að ég ætla bara að ofdekra þessi sem ég á fyrir.